Hildur er 28 ára með B.A. í grafískri hönnun frá Háskóla Íslands og M.A. í vefsíðuhönnun frá háskóla í Sviss. Að loknu námi bauðst henni strax vinna hjá tölvuleikjaframleiðanda í Sviss. Þar vann hún sig hratt upp innan fyrirtækisins og var fljótt yfirmaður hönnunardeildar fyrirtækisins. Hún á marga góða starfsfélaga og vini í Sviss en saknar fjölskyldu sinnar og vina á Íslandi. Því ákveður Hildur að sækja um starf sem stjórnandi hönnunar og þróunardeildar nýs tölvuleiks, hjá íslenskum tölvuleikjaframleiðanda.