Ágæti starfsmaður Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Okkur þætti vænt um ef þú sæir þér fært að taka þátt í meðfylgjandi könnun. Könnunin er gerð í þeim tilgangi að leggja mat á starfsumhverfi starfsfólks hjá HH. Þátttakendur eru starfsfólk fimmtán starfsstöðva HH, auk miðlægra eininga hennar. Könnunin er í formi spurningalista sem samanstendur af 28 spurningum og tekur það um 5 til 10 mínútur að svara. Könnunin mun standa yfir dagana 11. til og með 18. september 2017. Þér er hvorki skylt að svara einstökum spurningum né spurningalistanum í heild. Litið er á þátttöku sem upplýst samþykki. Könnunin er nafnlaus og farið verður með öll svör sem trúnaðarmál. Ekki verður hægt að greina svör einstakra starfsmanna. Framkvæmd könnunarinnar hefur verið samþykkt af framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Tilkynning um gagnaöflun hefur jafnframt verið send til Persónuverndar. Hafir þú einhverjar spurningar varðandi könnunina þá vinsamlegast sendu fyrirspurn á undirritaða á netfangið: [email protected] Hér er vefslóð á könnunina: https://www.questionpro.com/a/editSurvey.do?surveyID=5695263 Með fyrirfram þökk fyrir þátttöku, Svava Kristín Þorkelsdóttir
Umsjón með könnuninni hefur Svava Kristín Þorkelsdóttir, mannauðsstjóri HH og er hún jafnframt ábyrgðarmaður könnunar, sími 585-1317 / 821-2105 Netfang: [email protected]
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að hefja könnunina. |